Blovurblogg

Velkomnir Blovurfélagar

18.11.2008 10:20:03 / blovur

Framtíðin...

Nú er komin aftur upp þessi gamla góða spurning sem virðist poppa upp með nokkurra ára millibili "hvað á að gera næst?".
Ég er ein af þeim sem misst hafa vinnuna í þessari svo kölluðu kreppu og það virðist sem fá störf séu í boði fyrir mig á markaðnum! Í hverri viku koma c.a. 3 - 4 störf inn á vefinn á viku sem ég gæti hugsað mér að vinna og ég sæki um en enn sem komið er hefur enginn sóst eftir meðmælum með mér til meðmælanda míns... Það er nokkuð hart eftir 1 og ½ mánaðar leit! Svo hef ég einnig verið að skoða vefi fyrirtækja til að athuga hvort eitthvað sé í boði þar en svo er ekki :(
Svo að ég hef ákveðið að snúa vörn í sókn og hef skráð mig í BA nám í ensku hjá HÍ og hraðlestrarnám hjá Hraðlestrarskólanum. Maður getur alltaf á sig ensku bætt ;)

Heyrumst síðar

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 23:30:37 / blovur

Tími til kominn...

eða hvað...

Ég sit hérna heima og er í veikindafríi, er búin með eina viku og á tvær eftir...
Ég fór í krossbandsaðgerð á hægra hné sem ég sleit 1993... kominn tími til. Læknirinn sagði að það væri ekki seinni vænna þar sem að ég er að verða búin með liðþófann. Samkvæmt honum hefði næsta stig verið hnjáskiptiaðgerð! Halló!
Svo fer ég til sjúkraþjálfans á morgun til að fá æfingarprógramm til að þjálfa mig svo að ég geti farið að hreyfa mig meira. Það verður svo bara að koma í ljós hversu vel mér gengur, markmiðið er að geta byrjað að hreyfa sig vel með vorinu og geta kannski gengið á eitt, tvö fjöll í sumar...
Hnéð er að virka, er farin að geta beygt það í 90° og ef ég hlýði sjúkraþjálfanum á ég að geta náð mér vel.

Hlakka til þess :)

Takk fyrir mig í bili.
Kv. Blovur


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 20:11:30 / blovur

Sælt veri fólkið,

Vinnan

Mikið rosalega er maður busy! Ég var hreinlega búin að gleyma því að ég ætti blogsíðu... Það er búið að vera mjög mikið að gera í vinnunni frá því að ég tók við henni um miðjan apríl ;) Ég er ennþá að læra á starfið og verkefnin verða bara skemmtilegri og stærri og betri :lol::lol:

Sumarfrí

Fjölskyldan er komin í sumarfrí og skemmta þau sér vel í sveitinni hans afa. Skottan og kisurnar elska sveitina. Afi keypti líka nýja sláttuvél um daginn, stóra traktorssláttuvél og skottan elskar að fara á rúntinn á henni með pabba. Þau slógu miðjuna á heimreiðinni í gær!

Brúðkaup

Þann 07.07.07 fórum við í brúðkaup til Guðrúnar og Steina. Yndislegur brúðkaupsdagur, ég hef aldrei "tárast" eins mikið í brúðkaupi áður (eiginmanninum fannst það bara fyndið).

Þjóðhátíð!

Fjölskyldan hefur ákveðið að fara á Þjóðhátið þetta árið. Það eru orðin 7 ár síðan við fórum síðast og helgina eftir það giftum við okkur ;), nóvember ári seinna þá fæddist skottan og verður þetta fyrsta skiptið hennar á Þjóðhátið.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 09:29:46 / blovur

Langt síðan síðast ;D

Sælir Blovurfélagar,

Blovurin er útskrifuð og komin með vinnu hjá IH. Er í vinnunni svo að ég get ekki skrifað, vildi bara láta vita að ég er lifandi :D

Kveðja Blovur


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 11:19:47 / blovur

en mamma það eru jól...

Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

hún dóttir mín er orðin svo þreytt á því að mamman sé alltaf í skólanum að kveðjuorðin í morgun voru "en mamma þarftu að fara í skólann, það eru jól..." :cry:  það er ekki eins og mig langi ekki til að kúra í sófanum með henni og horfa á teiknó, en ég verð að leggja mig fram við að ná góðri einkunn fyrst mér tókst að klúðra prófinu (með 5,1999 - þarf 5,5 til að ná!!).

Kveðja í bili (verð að lesa) Blovur

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 01:41:04 / blovur

En ekki hvað...



Þú ert miðlungssteikt dramadrottning.





Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust
"rare",
"medium rare",
"medium"
og "well done"
værir þú "medium". Miðlungssteiktar dramadrottningar eru konur meðalhófs. Þær eru skynsemisverur miklar, hafa sterka réttlætiskennd og vilja öllum vel. Í raun myndu flestar miðlungssteiktar dramadrottningar frekar vilja vera baunabuff en hamborgari því þá hefðu engin saklaus dýr þurft að líða fyrir samlíkinguna.



Miðlungssteiktar dramadrottningar hafa algera stjórn á dramatíska hluta heilans. Í raun verður sjaldan vart dramatískrar hegðunar hjá hinni miðlungssteiktu. Ekki einu sinni slæmur hárdagur getur raskað ró hennar.



Miðlungssteiktar dramadrottningar eru hæglátar, yfirvegaðar en fylgispakar. Þær eru trúar leiðtoga sínum sem er gjarnan léttsteikta dramadrottningin og fylgja henni oft í blindni. Þegar á reynir er hún hins vegar ekki tilbúin til að hvika frá sannfæringu sinni og á það til að vera samviska þeirrar léttsteiktu og halda henni á jörðinni.



Hversu mikil dramadrottning ert þú?


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 15:15:40 / blovur

Vörnin verður 14.des

Þá er allt að verða búið, bara vörnin eftir og hún verður á fimmtudaginn...
Wish me luck!

Kv. Blovur

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 10:26:01 / blovur

Upp og niður...

Þvílíkt og annað eins, merkilegt hvernig mér tekst alltaf að klúðra einföldustu hlutum. Ég var í prófi á miðri önninni og fékk einkunina um helgina sem by the way átti ekki að vera meiriháttar en ekki slæm heldur - hún var rétt fyrir ofan mörkin!!! alveg ótrúlegt hvað það prófin koma alltaf illa út hjá mér, en ég næ samt alltaf góðri vetrareinkunn sem hífir upp lokaeinkunina, sem betur fer, því annars væri ég ekki með góða meðaleinkunn. Þrátt fyrir þessa einkunn þá á ég von á góðri einkunn fyrir verkefnið okkar, því að ég var í mjög góðum hópi þar. En svona til að vega aðeins upp á móti þessu þá fengum við 10 fyrir verkefni í öðru fagi sem að passar upp á það að ég kem til með að útskrifast með fyrstu einkunn ;) það eina sem ég þarf að gera er að ná prófinu sem ég er að læra undir, sem verður þann 1. des.
Annars er bara allt fínt að frétta og ég er að fara að bæta inn myndum á heimsíðuna hennar Skottu litlu.

Kveðja Blóvur

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 17:23:07 / blovur

Blovur@school

Halló kæru vinir, mikið er gott að koma inn á vefinn og senda ykkur smá línu.
Skólinn er alveg á milljón núna og verður það næsta mánuðinn, síðasta prófið sem ég þreyti í þessari prófatörn er 1.des og 2. des er á áætlun að halda upp á afmæli prinsessunar svo er ég komin í smá frí þar til vörnin verður. Hún ætti ekki að vera mikið vandamál miðað við allar kynningarnar sem við erum búnar að halda í gegnum síðastliðin þrjú ár.

Prinsessan og pabbinn fóru ásamt afa og kisunum í bústaðinn um helgina :( mig langaði ekkert smá með. Það er komin smá lost fílingur þegar allur tíminn fer í að hanga í skólanum, og á meðan safnast upp allt það sem þarf að gera heima. Eiginmaðurinn reynir eins og hann getur að halda öllu við, en þegar fólk kemur bara heim til að borða og sofa fer tíminn frekar í samveru en tiltekt ;)

Hlakka til að geta eytt tíma með fjölskyldu og vinum, og kíkja á litlu skólasystkinabörnin sem fæddust á önninni, 4 komin í heiminn og einhver á leiðinni, og af þeim eru tvö sem ég þekki vel til og búin að fá að knúsa einn ;)

Bless í bili af Höfðabakkanum - Blovur

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 10:36:50 / blovur

Nóg að gera

Fólk er ekki alveg að fíla windows live spaces svo að ég ætla að halda mig við þessa síðu þar til annað kemur í ljós ;)

Nú eru bara 3 vikur þar til skila á inn lokaritgerðinni og spennan að aukast. Lokaprófið er svo 1. des og þá verður farið að baka því að halda á upp á afmæli prinsessunnar 2. des. 
Eiginmaðurinn og prinsessan fóru til Eyja í gærkvöldi og var víst ekki gott í sjóinn :( en hún svaf víst alla leiðina svo hún hefur ekki fundið mikið fyrir þessu ;)

Planið er að vera í skólanum alla helgina og klára eins mikið og hægt er, sérstaklega þó verkefnin tvö sem skila á 1. og 2. nóv, í dag er það lokaverkefnið.

Ég verð þó að segja að það er orðið svolítið ógnvænlegt að sjá allt í einu fyrir endann á skólanum en samt svolítið spennandi. Svo er bara næst að fara að leita sér að starfi ;) Vantar ykkur vörustjóra?

Kveðja Blovur


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 11:09:18 / blovur

Live messenger

Hæ kæru vinir, endilega kíkið á http://thuridurs.spaces.live.com/. Er að prófa nýtt.

Kveðja Blovur


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 01:01:58 / blovur

Til hamingju Magni!

Ég óska honum Magna til hamingju með árangurinn og Til hamingju Ísland, Okkur tókst heldur betur að halda okkar manni inni.

Ég veit ekki um hina en ég var ansi þreytt í dag 8|  en það var vel þess virði þegar maður heyrði úrslitin ;)

Kv. Blovur

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 12:23:06 / blovur

Skólinn byrjaður aftur

Nú er fyrsta skólavikan búinn og kominn tími til að byrja að blogga.

Sumarið leið mjög fljótt og ég hafði það mjög gott. Fór tvisvar Vestur til mömmu og náði eiginmanninum með mer í seinna skiptið. Svo fórum við í sveitina okkar þar sem við áttum tvær æðislegar vikur í sól og blíðu, meðal annars. Dótturinni fannst ekkert gaman að vera eina barnið í sveitinni og tilkynnti okkur að þegar hún yrði stór ætlaði hún sko að eignast tvö börn, því að það væri svo leiðinlegt að vera eina barnið!

Eiginmaðurinn náði að láta áralangann draum rætast um helgina þegar hann keypti sinn fyrsta jeppa, og ég verð að viðurkenna að ég tek mig svolítið vel út á bak við stýrið á honum ;), svo að núna hefur hann enga afsökun fyrir því að koma ekki með mér Vestur!

Við Guðrún erum byrjaðar á fullu að vinna lokaverkefnið okkar og förum á tvo fundi þessa vikuna til þess að koma okkur betur af stað. Þá hittum við leiðbeinandann- og tengilið okkar hjá Alcoa.



Svo vil ég minna alla til að vaka í nótt og kjósa hann Magna!

Kveðja Blovur

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 22:40:02 / blovur

Prufa

Prufa

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 10:53:27 / blovur

Vesturferðir

Það lítur út fyrir að ég fari tvisvar vestur í sumar. Við Lólafía og skottan mín ætlum að fara vestur á Dýrafjarðardaga, og svo förum við fjölskyldan í ferðalag um miðjan júlí sem byrjar á ættarmóti Sæby- og Vormssystra á Reykhólum. Þaðan förum við í ferðalag um Vestfirðina ásamt þeim fjölskyldum sem áhuga hafa að flakka aðeins um firðina, fólk sem sjaldan eða aldrei hefur komið þangað áður.
Mig er farið að hlakka mjög til og nú er bara að klára það sem ég er að gera svo að þetta verði skemmtilegt sumar.

Kveðja Blovur

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Myndasöfn
Klukkan